Irina Shayk, kærasta portúgalska knattspyrnumannsins Cristiano Ronaldos, birtist nakin á myndum í nýjasta hefti spænsku útgáfunnar af tímaritinu GQ. Sjálf fullyrðir hún þó að þær hafi verið birtar gegn vilja hennar. Spænska blaðið El País segir frá þessu í dag.
Ritstjóri blaðsins, Javier Fernández Angulo, heldur hins vegar fram að fyrirsætan hafi svipt sig klæðum sjálfviljug. Ritstjóranum og fyrirsætunni ber þó saman um að á þremur af þeim fjórtán myndum sem fylgja með viðtalinu við Shayk hafi hún klæðst engu nema húðlituðum nærbuxum sem fjarlægðar voru í myndvinnslu eftir á.
„Í þessari tegund mynda klæðast fyrirsæturnar fatnaði af þessu tagi til þess að þurfa ekki að sitja fyrir naktar en hún vissi að nærbuxurnar yrðu fjarlægðar. Hún er nærfatafyrirsæta sem er vön myndatökum af þessum toga. Þegar ljósmyndarinn spurði hana hvort hún vildi hátta sig sagði hún 'að sjálfsögðu',“ sagði ritstjórinn.
Gael Marie, framkvæmdastjóri Elite, umboðsfyrirtækisins sem hin rússneska Shayk er á mála hjá hefur aðra sögu að segja. „Það stóð ekki til að hún kæmi nakin fram. Þar að auki fór hún fram á að sjá myndirnar og myndatextana fyrir birtingu en það fékk hún ekki.“
Fernández Angulo fullyrðir að myndirnar hafi verið sendar skrifstofu hennar fyrir birtingu.
Shayk setti þó það skilyrði fyrir viðtalinu að hún yrði ekki spurð um ástmann sinn, Cristiano Ronaldo. Á forsíðu tímaritsins sagði þó: „Viltu kynnast kærustu Ronaldos nakinni?“
„Það getur verið að það hafi farið í taugarnar á henni að við höfum sagt frá því á forsíðunni að hún væri núverandi kærasta Ronaldos og hún hafði beðið okkur um að sleppa því,“ útskýrði ritstjórinn. „Það var nauðsynlegt að taka þetta fram því að ástæðan fyrir því að hún birtist á forsíðu er vegna þess að hún er kærasta þess sem hún er.“
Umboðsmaður fyrirsætunnar hefur tilkynnt að lögfræðingar hennar muni skoða málið og útilokar ekki að höfða mál gegn tímaritinu.