Hinn 39 ára gamli Alexander Ofner var handtekinn um helgina fyrir að stunda sjálfsfróun á almannafæri.
Ofner sat aftast í bíósal í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum og horfði á nýjustu myndina um galdrastrákinn Harry Potter. Á meðan sýningunni stóð stundaði hann sjálfsfróun og var gómaður af starfsfólki kvikmyndahússins.
Ekki er vitað hvort Ofner hefur áður gerst sekur um athæfið horfandi á hinar myndirnar í seríunni um Harry Potter og félaga hans í Hogwarts.