Enski leikarinn Ed Westwick, sem leikur í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl, mun vera staddur hér á landi og samkvæmt heimildum mbl.is vakti hann talsverða athygli á skemmtistöðum í miðborg Reykjavíkur í nótt og utan við þá.
Westwick leikur hlutverk Chuck Bass í þáttunum. Hann er 23 ára og lék í breskum sjónvarpsþáttum áður en hann hélt til Bandaríkjanna.
Fyrir skömmu var Penn Badgley, sem einnig leikur í Gossip Girl, hér á landi og vakti þá einnig mikla athygli í skemmtanalífi Reykjavíkur.