Glamúrdrottningin Vala Grand er stödd í Danmörku þessa daganna þar sem hún heimsækir vini og sækir þorrablót Íslendingafélagsins í Óðinsvéum. Í einni af fjölmörgu verslunarferðum Völu í Danmörku varð hún fyrir því óláni að veskinu hennar var stolið.
,,Ég leit undan í 3 sekúndur og þegar ég leit við var veskið horfið”, sagði Vala hundsvekkt en í veskinu var töluvert af peningum. „Ég geri mér engar vonir um að fá það til baka, ég er ógeðslega fúl yfir þessu.“
Ævintýri Völu í Danmörku er gerð góð skil í nýjasta þættinum af Veröld Völu Grand hér á Mbl Sjónvarpi.