Framkvæmdaaðilar Eagles tónleikanna ætla að selja 50 miða á tónleikana á 5.000 kr. stykkið.
Ástæða þessa er sú að vegna breyttrar staðsetningar hljóðblöndunarborðs myndaðist pláss fyrir 50 gesti til viðbótar.
Aðstandendur hafa því ákveðið að stilla miðaverði í hóf. Uppselt varð á tónleikana fyrir þónokkru enda vinsæl hljómsveit.
Smellið hér til að verða ykkur út um miða