Glamúrdrottningin Vala Grand er komin með kærasta samkvæmt facebook síðu hennar. Hinn heppni er danskur sterkefnaður tölvusérfræðingur að nafni Nicolai Voll, en er hluthafi í tölvufyrirtækinu JDM í Oðinsvéum í Danmörku auk þess sem hann á fleiri fyrirtæki þar í landi.
Leiðir Völu og Nicolai lágu saman í byrjun árs þegar hún fór til Danmerkur í tengslum við þáttinn Veröld Völu Grand sem sýndur var hér á Mbl Sjóvnarpi.
Á facebook síðu sinni tjáir Vala ást sína á Nicolai og viðbrögðin láta ekki á sér standa, yfir 100 manns líkar við statusinn og um 30 manns óska glamúrdrottningunni til hamingju.