Rúrik Gíslason er einn af lykilmönnum íslenska U21-landsliðsins sem spilar sinn fyrsta leik á Evrópumótinu í Danmörku nú um helgina. Hann mætti í brúðkaup systur sinnar um síðustu helgi en í þessu myndskeiði segir hann frá því að í fyrstu hafi honum ekki litist á mág sinn, Jóhannes Ásbjörnsson.
Monitor-tölublað vikunnar er tileinkað U21-landsliðinu og verður blaðinu dreift frítt með Finni um allt höfuðborgarsvæðið og með Morgunblaðinu á landsbyggðinni.