Sjarmatröllið Eric Dane skráði sig nýlega í meðferð. Leikarinn kynþokkafulli, sem aðdáendur Grays Anatomy þekkja betur sem Dr. McSteamy, ku vera háður verkjalyfjum en hann á von á barni númer tvö.
„Leikarinn Eric Dane skráði sig sjálfviljugur inn á meðferðarstofnun til þess að fá aðstoð við að losna undan ávana verkjalyfja sem var skrifað uppá fyrir hann þegar varð fyrir íþróttameiðslum í fríinu frá tökum,“ sagði í tilkynningu talsmanns leikarans. „Hann mun mæta aftur til vinnu í þessari viku.“
Dane, 38 ára, á 16 mánaða dóttur, Billie, með leikkonunni Rebeccu Gayheart, 39 ára, en þau tilkynntu fyrir nokkrum vinum að þau ættu von á öðru barni.