Leikarinn Stefán Karl Stefánsson fer nú um gjörvöll Bandaríkin í hlutverki Trölla í leiksýningunni Þegar Trölli stal jólunum. Í viðtali við sjónvarpsstöðina CBS í Pittsburg ræðir Stefán Karl um sýninguna, hlutverk sitt í þáttunum um Latabæ og stofnun Regnbogabarna.
Stjórnendur þáttarins hrifust mjög af framtaki Stefáns við stofnun Regnbogabarna og lofuðu hann í hástert.