Ashley Tisdale hætt með kærastanum

Ashley Tisdale.
Ashley Tisdale. mbl.is/Cover Media

Ashley Tisdale, sem gerði garðinn frægan í hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum  High School Musical, er hætt með kærastanum Scott Speer eftir tveggja ára samband. Tisdale, sem er 26 ára, hitti Speed vorið 2009 aðeins mánuði eftir að hún sleit sambandinu við þáverandi kærasta, Jared Murillo. Samkvæmt heimildamanni tímaritsins Us Weekly voru Tisdale og Speer búin að vera sundur og saman í nokkurn tíma og reyndu að bjarga sambandinu en voru svo sammála um að það væri ekki hægt.

Í viðtali við tímaritið Seventeen á síðasta ári segir Tisdale að þegar komi að karlmönnum skipti persónuleikinn meira máli en útlitið. Í menntaskóla hafi allt snúist um að vera vinsælust og eiga kærasta sem öllum hinum stelpunum fannst sætur. Núna líti hún málin öðrum augum og heillist fyrst og fremst af manninum og þeirri persónu sem hann hefur að geyma, útlitið sé aukaatriði. Í blaðinu segir Tisdale nauðsynlegt að kærastinn sé skemmtilegur en jafnframt jarðbundnari en hún því það hjálpi henni að slaka á.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sjaldnast vitum við alla söguna um annað fólk og því eigum við að fara okkur hægt í að dæma. Þú varpar öndinni léttar þegar þú færð fréttir af ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sjaldnast vitum við alla söguna um annað fólk og því eigum við að fara okkur hægt í að dæma. Þú varpar öndinni léttar þegar þú færð fréttir af ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Colleen Hoover
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Ragnheiður Gestsdóttir
5
Sigrún Elíasdóttir