Á ýmsu gekk hjá bresku konungsfjölskyldunni á árinu. Elísabet drottning fagnaði 60 ára valdaafmæli, Filippus drottningarmaður veiktist alvarlega, Harry prins birtist berrassaður í blöðunum og Katrín hertogaynja varð ólétt.
Áður höfðu þó einnig birst nektarmyndir af henni í fjölmiðlum.
Öll fjölskyldan var svo á verð og flugi allt árið til að fagna valdaafmælinu. Farið var um fyrrverandi nýlendur og sambandsríkin heimsótt.