12 ára drengur ákærður í máli Kutcher

Ashton Kutcher varð fyrir barðinu á hrekkjalómum á dögunum.
Ashton Kutcher varð fyrir barðinu á hrekkjalómum á dögunum. PictureGroup / Rex Features

Töluvert hefur borið á því að undanförnu að lögregla sé kölluð að tilefnislausu að heimilum þekktra einstaklinga í Hollywood vegna innbrota eða vár sem ekki reynist fyrir hendi. Var 12 ára drengur ákærður nú nýverið fyrir að hafa staðið fyrir símtali í neyðarlínuna, þar sem lögregla var kölluð að heimili Ashton Kutcher í Los Angeles.

Í símtalinu til neyðarlínunnar í október síðastliðnum var sagt að óprúttnir aðilar hefðu brotist inn á heimili leikarans og væru þar vopnaðir skotvopnum og sprengiefni. Sendi lögregla tafarlaust lið á staðinn þar sem í ljós kom að um hrekk var að ræða.

Í desember handtóku yfirvöld 12 ára dreng sem grunaður var um að hafa staðið fyrir símtalinu segir á vef TMZ. Er sá einnig grunaður um að hafa staðið fyrir öðrum símahrekk þar sem hótað var sprengingu í banka.

Var drengurinn á dögunum ákærður fyrir tvær falsaðar sprengjuhótanir auk þess sem hann er einnig ákærður fyrir að brjótast inn í tölvubúnað. Mun hann þurfa að svara til saka fyrir brotin fyrir unglingadómstól.

Ekkert hefur heyrst frá Kutcher varðandi málið. Hann er þó ekki einn um að hafa orðið fyrir barðinu á slíkjum hrekkjum en einnig má nefna t.d. Justin Bieber, Miley Cyrus, foreldra Kim Kardashian og Simon Cowell, sem öll hafa lent í svipuðu að undanförnu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú er ráð að hugsa um framtíðina og íhuga hvar þú vilt vera eftir fimm ár. Settu þér markmið, skrifaðu þau niður og hafðu fyrir augunum alla daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú er ráð að hugsa um framtíðina og íhuga hvar þú vilt vera eftir fimm ár. Settu þér markmið, skrifaðu þau niður og hafðu fyrir augunum alla daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach