Fyrsti sjónvarpsþáttur í Ljósmyndakeppni Íslands var sýndur á SkjáEinum í kvöld. Efnt var til ljósmyndakeppni á mbl.is í aðdraganda þáttarins. Þema keppninnar var portrett, líkt og þema þáttarins á SkjáEinum í kvöld, og átti Gunnar Ásgeir Ásgeirsson bestu portrett-myndina. Yfir fimm hundruð myndir bárust í portrett-keppnina.
Þema sjónvarpsþáttarins í næstu viku er SÓFI. Keppni er hafin á mbl.is um bestu sófa-myndina og stendur til 3. apríl.
Í tengslum við Ljósmyndakeppni Íslands efnir mbl.is til nokkurra ljósmyndakeppna á vefnum. Vikulega er sýndur þáttur í samnefndri sjónvarpsþáttaröð á SkjáEinum og þema þáttar vikunnar er þema ljósmyndakeppninnar á mbl.is.
Þátttaka í þemakeppnum á mbl.is er öllum opin. Vinningsmynd í hverri þemakeppni verður birt í sjónvarpsþættinum auk þess sem sigurvegari hlýtur Canon myndavél að launum.
Síða ljósmyndakeppninnar á mbl.is