Dagana 25. og 26. maí standa alþjóðlegu ungmennasamtökin AISEC fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni „START - AIESEC career design conference“. Á ráðstefnunni koma fram fyrirlesarar sem notið hafa velgengni í viðskiptalífinu og tala um hvernig byggja á upp starfsferil á árangursríkan hátt, leiðtogahæfni, frumkvöðlastarfsemi og fleira.
Framkvæmdastjóri AISEC, Armina Ilea, segir þörfina fyrir sterka stjórnendur á vinnumarkaðinum mikla og telur mikilvægt að hvetja ungt fólk til að nýta sér öll þau tækifæri sem þeim bjóðast.
Þátttaka í viðburðinum er ókeypis og opin öllum. Monitor mælir með því að þú skellir þér niður í Hitt hús á laugardaginn og takir þátt í dagskránni en nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér.