Lauryn Hill situr í fangelsi

Lauryn Hill hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm fyrir skattsvik
Lauryn Hill hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm fyrir skattsvik

Tónlistarkonan Lauryn Hill hefur nú hafið afplánun á þriggja mánaða fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir skattsvik.

Samkvæmt heimasíðu TMZ hóf Hill afplánunina í gær í kvennafangelsinu í Danbury, Connecticut. Lágmarksgæsla er í fangelsinu og mun Hill ekki fá neina sérmeðferð vegna frægðar sinnar.

Á seinasta ári játaði Hill af hafa svikið undan skatti á árunum 2005-2007. Stjörnur á borð við Stevie Wonder og Alicia Keys hafa lýst yfir stuðningi sínum við Hill og líkt skattkerfinu í Bandaríkjunum við þrældóm.

Dómari í máli Hill tók tillit til þess að Hill hafði hreina sakaskrá og hafði greitt hluta af skuldinni til baka og þess vegna hlaut söngkonan dóm sem þykir tiltölulega vægur fyrir brot af þessu tagi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Yfirmenn þínir taka mark á því sem þú hefur fram að færa í dag. Tilfinningar þínar til makans eru sterkari en nokkru sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Yfirmenn þínir taka mark á því sem þú hefur fram að færa í dag. Tilfinningar þínar til makans eru sterkari en nokkru sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup