Í dag frumsýndi vefurinn NME.com nýtt tónlistarmyndband Ásgeirs Trausta við lagið King and Cross sem er enska útgáfa smellsins Leyndarmál. Er þetta í fyrsta sinn sem Ásgeir sendir frá sér leikið tónlistarmyndband en það eru Íslendingarnir Arni og Kinski sem eiga heiðurinn að leikstjórn myndbandsins. Áður hafa þeir meðal annars leikstýrt myndböndum fyrir Sigur Rós og Florence and the Machine. Söngvaskáldið John Grant, sem semur einmitt megnið af enskum textum Ásgeirs, fer með hlutverk kóngsins í myndbandinu. Sjón er sögu ríkari.