Leikonan Lisa Robin Kelly látin

Leikkonan Lisa Robin Kelly, sem lék meðal annars í That `70s Show, ásamt  Ashton Kutcher og Mila Kunis, er látin 43 ára að aldri.

Á fréttavef breska ríkisútvarpsins er haft eftir umboðsmanni hennar, Craig Wyckoff, að Kelly hafi látist á miðvikudag á meðferðarstofnun fyrir eiturlyfjafíkla í Los Angeles þar sem hún hafði verið lögð inn fyrr í vikunni. Ekkert hefur verið gefið upp hver dánarorsökin er.

Eftir að Kelly hætti að leika í þáttunum bar lítið á henni þar til fréttir bárust af vandamálum hennar í einkalífinu. Hún var handtekin í nóvember ásamt eiginmanninum, Robert Joseph Gilliam, eftir að kvartað var undan hávaða á heimili þeirra. Í júní var hún handtekin fyrir akstur undir áhrifum áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú er ráð að hugsa um framtíðina og íhuga hvar þú vilt vera eftir fimm ár. Settu þér markmið, skrifaðu þau niður og hafðu fyrir augunum alla daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú er ráð að hugsa um framtíðina og íhuga hvar þú vilt vera eftir fimm ár. Settu þér markmið, skrifaðu þau niður og hafðu fyrir augunum alla daga.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach