Sharon Osbourne lýsir vini sínum, Simon Cowell, sem mjúkum og viðkvæmum manni.
Osbourne fullyrðir að Cowell sé mun betri maður en fólk telur hann vera. „Hann er góður maður, hann var fyrsta manneskjan sem hafði samband við mig eftir að sonur minn greindist með MS-sjúkdóminn,“ sagði Osbourne í viðtali við Daily Mail.
„Hann er mjúkur og viðkvæmur maður inn við beinið.“