Britney Spears er búin að senda frá sér sýnishorn af myndbandinu sem hún er að vinna að fyrir nýja lagið sitt Work B**ch og það verður að segjast eins og er að hún lítur mjög vel út.
Samkvæmt heimildum Heat var myndbandið tekið upp í eyðimörkinni og er söngkonan fáklædd í myndbandinu og kannski ekki við öðru að búast svo sem.
Hún sagði að það hefði ekki verið auðvelt. „Danshöfundurinn sagði við mig, Britney Spears þú átt ekki að vera sveitt húsmóðir að dansa í þessu myndbandi, þú átt að vera kynþokkafull og óþekk móðir,“ sagði Spears.
Sýnishornið úr myndbandinu Work B**ch má sjá hér fyrir neðan.