Ásgeir hlýtur stór alþjóðleg verðlaun

Ásgeir
Ásgeir

Íslenski tónlistarmaðurinn Ásgeir er búinn að koma sér rækilega á kortið á þeim stutta tíma sem hann hefur verið starfandi. Skemmst er að minnast þess er hann kynnti sitt fyrsta tónlistarmyndband í sumar, en það naut strax mikilla vinsælda.

Nú heldur Ásgeir hins vegar sigurgöngunni áfram en hann er á meðal tíu handhafa EBBA verðlaunanna sem veitt verða við hátíðlega athöfn í Groningen í Hollandi þann 15. janúar. Verðlaunin eru veitt því tónlistarfólki sem þykir hafa náð  framúrskarandi árangri með tónlist sinni út yfir landamæri heimalandsins. 

Sigurvegararnir eru valdir annars vegar af markaðsgreiningarfyrirtækinu Nielsen Music Control á grundvelli tónlistarsölu og útvarpsspilunar og hins  vegar með atkvæðagreiðslu innan Samtaka evrópskra útvarpsstöðva (EBU) og  tengslanets evrópskra tónlistarhátíða. Verðlaunin eru nú haldin í ellefta sinn og er þetta einungis í annað sinn sem íslensku tónlistarfólki hlotnast þessi heiður en í fyrra hlaut hljómsveitin Of Monsters and Men verðlaunin. 

Ásgeir kemst í ansi góðan félagsskap með verðlaununum en meðal annarra sem hafa hlotið þau síðastliðin ár eru Adele, Lykke Li, Mumford & Sons, Damien Rice, C2C og Katie Melua.

Auk þess að koma fram á verðlaunahátíðinni hefur Ásgeiri verið boðið að
taka þátt í Eurosonic tónlistarhátíðinni í annað sinn.

Stiklu um verðlaunahátíðina má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Líttu málin raunsönnum augum og þá sést að flest er í lagi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir