Leikaraparið Eva Mendes og Ryan Gosling hefur verið saman í tvö ár en nú er orðrómur á sveimi um að sambandið gangi illa. Mendes kom hingað til lands í sumar til að heimsækja Gosling sem vann hér við kvikmynd.
Í frétt afþreyingarmiðilsins Entertainmentwise kemur fram að parið hafi hætt saman fyrir hálfu ári en tekið saman á ný. Þrátt fyrir rómantík sé sambandið á viðkvæmu stigi og er haft eftir ónafngreindum heimildum að Mendes sé óörugg og skoði skilaboð úr leyninúmerum í síma hans.
Gosling var hér á landi við vinnslu á kvikmyndinni How to Catch a Monster líkt og ítarlega var fjallað um í íslenskum fjölmiðlum.
Mendes á samkvæmt fréttinni að treysta á öxl fyrrverandi kærasta George Augusto og mun hún hafa látið mörg tár falla á þá öxl að undanförnu.
<span><a href="http://www.entertainmentwise.com/news/131267/Eva-Mendes-And-Ryan-Gosling-Relationship-Rocky-After-They-Briefly-Split-Six-Months-Ago#uDxIRiAw4gAUCEEx.99"></a></span>