Það er hátíðarbragur yfir nýjustu línu David Beckham fyrir H&M. Nýja línan kom í verslanir á þriðjudaginn en fyrrverandi fótboltamaðurinn situr fyrir í nærbuxum einum fata en auk þess er hann í nýjum efnismeiri flíkum er hann sat fyrir í búningsklefa.
Samkvæmt heimildum Daily Mail er fatalína Beckham fyrir H&M nú einnig með peysur, hlýraboli, náttbuxur, vesti og síðar nærbuxur.
Beckham sagði að hann fengi innblástur er hann sæti og horfði á mannfjölda ganga framhjá honum á strætum borgarinnar af því að þar sæi hann mikið af mismunandi fólki í mismunandi stílum.
„Ég elska vintage gallabuxur, vel sniðnar gallabuxur augljóslega og stuttermaboli. Ég á mjög marga stuttermaboli. Mér finnst þægilegt að vera í gallabuxum, stuttermabolum og strigaskóm. Fataskápurinn minn samanstendur eiginlega af þessum flíkum. Ég á líka nokkur jakkaföt,“ sagði Beckham um úrvalið í fataskápnum.
Meðfylgjandi er myndband af kappanum þar sem hann segir frá fatalínunni.