Söngvarinn Mick Jagger, sem er 70 ára gamall, á sjö börn og fjögur barnabörn. Nú berast fréttir af því að hann eigi von á sínu fyrsta barnabarnabarni og mun barnið koma í heiminn á næsta ári.
Dóttir elstu dóttur söngvarans Jade Jagger, Assisi Jagger (21 árs), er að undirbúa komu frumburðar síns og kærastans í heiminn.
Jade Jagger, sem er 42 ára, segir að þrátt fyrir að það hafi verið spennandi fyrir rokkarann að eignast barnabarn haldi hún að það hljómi ekki mjög spennandi að vera langafi.
Í samtali við The Sunday Times Style tímaritið játaði Jade Jagger að hún væri að verða amma. „Það er rétt. Ég er að verða amma.“
Þrátt fyrir að Jade Jagger virðist spennt fyrir því að verða amma aðeins 42 ára gömul er hún ekki jafnviss um að faðir hennar sé jafnspenntur.
„Ég held að það að gera Mick Jagger að afa hafi haft mikil áhrif á hann en að gera hann að langafa núna held ég að sé ekki sérlega spennandi,“ sagði Jade Jagger.
„Mick Jagger er ánægður og hefur undan engu að kvarta. Hann hefur grínast með það að hann sé að verða langafi sem er enn að troða upp,“ sagði heimildarmaður í samtali við Daily Mirror.