Þegar William Tell bað raunveruleikastjörnunnar Lauren Conrad kom það henni algjörlega í opna skjöldu.
„Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri að fara gerast. Ég hélt að hann ætlaði að klára lögfræðina áður,“ sagði Conrad í samtali við Cosmopolitan og bætti við: „Hann spurði ekki einu sinni vini mína hvað þeim fyndist um hringinn sem var ansi djarft af honum. Hann sagði: „Veistu ég veit að þú ert hrifin af mér og ég elska þig. Þetta er fullkomið.“
Þau trúlofuðu sig í október. „Tell þolir ekki þegar að ég segi þetta en hann er mjög indæll. Þegar að þú hittir einhvern sem er indæll og þér kemur saman við, það er algjör draumur.“