Lágt sjálfstraust og brotin sjálfsmynd eru gríðarlega algeng vandamál nú á dögum, sérstaklega meðal kvenna og ungra stúlkna. Þetta ætti þó engan að undra, enda dynja nánast stöðugt skilaboð á ungu fólki um það hvernig rétt er að líta út og hinn „fullkomni líkami“ er nánast alltaf mikið unninn og tölvugerður.
Special K bjó af þessu tilefni til myndband sem sýndi svart á hvítu þær hugmyndir sem margar konur hafa ranglega um sig, en þar var þeim stillt upp sem slagorðum í fataverslun. Þrátt fyrir að hér sé augljóslega fyrst og fremst um Special K-auglýsingu að ræða verður boðskapurinn og hugmyndin samt að teljast ansi góð.