Kölluð ljótasta kona í heimi

Hin 25 ára Lizzie

Hvatningarræða ungrar konu frá Texas, sem kölluð hefur verið „ljótasta kona í heimi“, hefur farið eins og eldur í sinu um netið síðustu daga.

Lizzie, sem er 25 ára, þjáist af sjúkdómi sem veldur því að hún getur ekki þyngst. Hún er mjög lítil og grönn og hefur aldrei náð að verða þyngri en 29 kíló. Jafnframt sér hún aðeins með öðru auga. Þrátt fyrir þessa kvilla hefur Lizzie eytt lífi sínu í að einblína á það jákvæða og starfar núna bæði sem fyrirlesari og rithöfundur.

Í myndbandinu hér að neðan má hlusta á þessa ótrúlegu konu tala um það sem hún er þakklát fyrir og kosti þess að hvorki þyngjast né sjá með öðru auganu á fyndinn hátt. Einnig talar hún um stríðni sem hún hefur orðið fyrir, bæði sem barn og á netinu sem fullorðin kona.

Lizzie lætur hvorki fólkið sem kallar hana ljótustu konu í heimi né sjúkdóm sinn aftra sér og hefur látið drauma sína rætast.

Sjón er sögu ríkari.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert traustur vinur og þeir sem umgangast þig vita það og einnig að þú gleymir ekki því sem gert er á þinn hlut eða þinna. Skrifaðu bestu hugmyndirnar þínar niður og farðu eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert traustur vinur og þeir sem umgangast þig vita það og einnig að þú gleymir ekki því sem gert er á þinn hlut eða þinna. Skrifaðu bestu hugmyndirnar þínar niður og farðu eftir þeim.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup