Lögreglan í Miami á Flórída hefur handtekið poppstjörnuna Justin Bieber, en hann er sakaður um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og fyrir að hafa stundað kappakstur á götum borgarinnar.
Atvikið átti sér stað á strandsvæði snemma í morgun. Bieber, sem er 19 ára gamall Kanadamaður, nýtur gríðarlegra vinsælda um allan heim.
Hann virðist hafa átt eitthvað erfitt uppdráttar að undanförnu, en í síðustu viku framkvæmdi lögreglan í Los Angeles leit í húsi hans eftir að Bieber af sakaður um að hafa kastað eggjum í hús nágranna síns.
Árið 2012 var Bieber sakaður um að hafa ekið gáleysislega. Saksóknarar létu hins vegar málið niður falla og var pilturinn ekki ákærður.