Í Los Feliz í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur nú verið opnað kaffihúsið Heimska Starbucks (e. „Dumb Starbucks“). Kaffihúsið er að mestu leyti alveg eins og Starbucks kaffihús, með eins merki, bolla og vörur, nema allir drykkirnir þar eru ókeypis.
Á Heimska Starbucks er hægt að fá drykki eins og á Starbucks, nema að þeir eru „heimskir“. Til dæmis er hægt að fá „heimskan karamelluís Macchiato“ og „heimskt grænt Frappuccino te“ á staðnum.
Stofnendur kaffihússins kalla kaffihúsið „skopstælingar-list“ á heimasíðu sinni en það er eina leiðin til þess að varast ákæru frá Starbucks sem stundar það grimmt að kæra þá sem framleiða vörur sem á einhvern hátt minna á Starbucks. Komst það meðal annars í fréttir í síðasta mánuði þegar kaffi-risinn kærði bareiganda fyrir að framleiða svokallaðan „frappicino“-bjór.
Samkvæmt heimasíðu Heimska Starbucks er það út af lagaástæðum sem kaffihúsið þarf að skilgreina sig sem list og er kaffihúsið þá í augum laganna listagallerí og kaffið sem maður drekkur listaverk.
„Við elskum Starbucks og lítum upp til þeirra en eina leiðin til að nota vitsmunalegar eignir þeirra er með því að gera grín að þeim,“ segja forsvarsmenn Heimska Starbucks.
Á staðnum eru jafnframt alls konar matvörur sem viðskiptavinir mega þó ekki taka og geisladiskar með titlum eins og „Dumb Norah Jones“ og „Dumb Jazz Standards“ en Starbucks hefur í fleiri ár selt geisladiska á kaffihúsum sínum.
Líklegt er að Starbucks sé að vinna í því að loka Heimska Starbucks og er því vissara að drífa sig í því að prófa sé maður staddur í Kaliforníu.