Kvikmyndavefurinn The Wrap greinir frá því að leikararnir Martin Henderson, Emily Watson, Thomas Wright og Michael Kelly hafi bæst í leikarahóp kvikmyndarinnar Everest sem Baltasar Kormákur leikstýrir. Enska leikkonan Watson er líklega þekktust í þessum hópi, hefur leikið í fjölda þekktra og viðurkenndra kvikmynda, m.a. Breaking the Waves og War Horse. Henderson á m.a. að baki kvikmyndina The Ring, Wright hefur leikið í bandarískri endurgerð sjónvarpsþáttanna Broen, The Bridge, og Kelly hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta og þá m.a. þáttunum House of Cards.