Trúlofun handan við hornið

Leikarinn Ashton Kutcher.
Leikarinn Ashton Kutcher. mbl.is/AFP

Leikkonan Mila Kunis og leikarinn Ashton Kutcher eru eitt af flottustu pörum Hollywood. Vinir parsins halda því fram að trúlofun sé handan við hornið.

Kunis hélt óvænt afmælisboð fyrir Kutcher á dögunum á uppáhaldsveitingastað hans í Hollywood, La Poubelle, en leikarinn varð 36 ára.

„Þetta var lítil veisla. Kutcher hefur farið á þennan stað í mörg ár. Þetta er einn af hans uppáhaldsveitingastöðum, þetta var mjög hugguleg stund og það var farið vel með þau,“ sagði heimildarmaður.

Það lítur út fyrir að Kunis hafi slegið í gegn hjá Kutcher þar sem boðið var eins og hann hefði skipulagt það sjálfur. „Kunis og vinir hans höfðu verið að skipuleggja afmælið í einhvern tíma. Kutcher vildi ekki gera mikið úr því en þetta var lítill og góður hópur sem kom saman. Hann hefur heldur betur breyst þar sem hann hafði mjög gaman af því að skemmta sér á árum áður. Þau skemmtu sér mjög vel,“ sagði heimildarmaður.

Einnig sagði annar heimildarmaður samkvæmt heimildum Heat að Kunis og Kutcher hefðu virst mjög ástfangin og henni hefði komið vel saman við vini hans. „Þau töluðu um að gifta sig og eignast börn. Trúlofun er handan við hornið.“

Leikkonan Mila Kunis.
Leikkonan Mila Kunis. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg