Sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir eru farnar að nýta sér nútímatæknina til að miðla upplýsingum til almennings. Ein þeirra stofnanna sem er með síðu á samfélagsvegnum Facebook er Neyðarlínan og deilir hún í dag með „vinum sínum“ skemmtilegri örsögu um rugling á númerunum 112 og 118.
Þar segir að það komi fyrir að fólk ruglist á númerunum 112 sem er hjá Neyðarlínunni og 118 sem er símaskráin. Hér á eftir fer eitt slíkt samtal:
Neyðarvörður: „1-1-2“
Innhringjandi: „Ha? Er þetta ekki 118?“
Neyðarvörður: „Nei, þetta er 112 Neyðarlínan.“
Innhringjandi: „Já ok... Hvað er þá númerið hjá 118?“
Neyðarvörður: „Væntanlega 118.“
Innhringjandi: „Já... skil... takk.“