Vilja gifta sig í Lundúnum

Leikaraparið Ashton Kutcher og Mila Kunis.
Leikaraparið Ashton Kutcher og Mila Kunis. mbl.is/EPA

Leikaraparið Mila Kunis og Ashton Kutcher á ekki aðeins von á barni, heldur eru þau einnig að undirbúa brúðkaup, en samkvæmt heimildum Heat eru þau spennt fyrir því að halda brúðkaupið hjá Kensingtonhöll. 

Bæði Kutcher og Kunis eru sögð vera ástfangin af Lundúnum eftir að Kunis var stödd þar við tökur á Jupiter Ascending, en þau eru að hugsa um að láta pússa sig saman heima hjá Katrínu hertogaynju og Vilhjálmi Bretaprins, eða allavega á jörðinni þeirra.

Þau tengjast konungsfjölskyldunni þannig að Kutcher er vinur kærasta Beatrice prinsessu, Dave Clark, en þeir kynntust í gegnum vinnu hans í Virgin Galactic, og eru þau öll vinir.

Beatrice prinsessa er sögð hafa bent tilvonandi brúðhjónum á heimili Vilhjálms Bretaprins frænda hennar, sem mögulega staðsetningu fyrir brúðkaupið. Hægt er að leigja The Orangery í Kensingtonhöll  fyrir um 13,5 milljónir á dag – og leikaraparið er spennt fyrir þessari hugmynd.

„Kunis og Kutcher eru sammála um að þessi staðsetning er falleg og þetta er mjög hentugur staður fyrir þau til að vera með litla athöfn með aðeins nánum vinum og ættingjum,“ sagði heimildarmaður Heat.



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Óöryggi gerir vart við sig, en ekki láta á neinu bera út á við. Góð samskipti og umræða verða til að skapa ánægju allra aðila.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Sigrún Elíasdóttir
3
Ragnheiður Gestsdóttir
4
Colleen Hoover
5
Camilla Läckberg