Ef þú hugsar „Hvað myndi Pútín gera,“ í hvert skipti sem þú kemst í hann krappan þá ert þú kextjúllaður einstaklingur en engu minni meistari fyrir vikið. Nema þig langi að taka yfir Krímskaga og viljir banna samkynhneigð, þá ertu líklega bara kextjúll. Hvað sem því líður hefur Monitor tekið saman tíu handhægar leiðir til að líkjast Vladimír Pútín örlítið meira.
1. Fáðu þér kafbát. Hvað er betra á sólríkum degi en að taka því rólega undir yfirborði sjávar?
2. Vertu dýravinur. Pútín má ekkert aumt sjá og er góður við menn og dýr, svo lengi sem þau eru ekki samkynhneigð.
3. Drekktu te. Allt alvöru fyrirfólk svolgrar í sig te og Pútín heldur reglulega teboð fyrir vini sína.
4. Sýndu börnunum hver ræður. Pútín er mikill karatekappi og minnir ungviðið reglulega á að innan jakkafatanna leynist ninja.
5. Ekki nota hjálm. Hjálmar eru í raun njósnatæki Bandaríkjamanna ætlaðir til þess að stela hugsunum okkar.
6. Vertu flottur í tauinu. Pútín er alltaf með puttann á púlsinum þegar kemur að fatnaði og fylgihlutum.
7. Felldu tár. Pútín er ekki hræddur við að fella tár enda er hann öruggur um karlmennsku sína vitandi að enginn getur stungið honum í fangelsi fyrir að vera samkynhneigður nema hann sjálfur.
8. Syntu eins og vindurinn. Syntu hratt og örugglega og vertu eins ógnandi og þú mögulega getur á meðan.
9. Farðu í göngutúra með byssuna þína. Vertu ber að ofan hvernig sem viðrar og mundu að sannar hetjur láta ekki smá frostbit stoppa sig.
10. Vertu tignarlegur. Alltaf.