Aldrei fór ég suður - Rokkhátíð alþýðunnar fór fram með pompi og prakt á Ísafirði um helgina. Hátíðargestir skemmtu sér hið besta þrátt fyrir alvöru páskahret og nýttu sér margir #afes14 og #afés14 til að merkja myndir frá hátíðinni á Instagram.
Monitor tók saman brot af því besta frá hátíðinni og það má með sanni segja að myndirnar og myndböndin hér að neðan fangi þá gríðarlegu stemningu sem ríkti meðal hátíðargesta. Jú, og að sjálfsögðu líka veðrið.