Geordie Shore á b5 í kvöld

Samkvæmt heimildum Monitor munu upptökur á breska raunveruleikaþættinum Geordie Shore fara fram á skemmtistaðnum b5 í kvöld.

Þátturinn er bresk útgáfa af hinum gríðarlega vinsælu þáttum Jersey Shore en báðir þættirnir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni MTV. Geordie Shore fylgir eftir djammþyrstum, tönuðum ungmennum frá norðausturhluta Englands en heimabyggð þeirra er sögð vera Newcastle þó svo að þau ferðist víða í þáttunum svo sem til Magaluf,  Cancun, Ástralíu og nú Íslands.

Um er að ræða upptökur fyrir áttundu þáttaröð Geordie Shore en stjörnur þáttarins eru þau Aaron Chalmers, Charlotte-Letitia CrosbyGary Beadle, Holly HaganJames Tindale, Marnie Simpson, Scott Timlin og Vicky Pattison. Chalmers er nýliði í þáttunum en hann hafði áður birst í annarri þáttaröðinni þar sem hann átti einnarnæturgaman með Hagan. Sophie nokkur Kasaei mun hinsvegar hafa verið rekin úr þáttunum í sjöundu þáttaröðinni vegna fordómafullra athugasemda og verður því ekki á b5 í kvöld.

Ekki er ljóst hversu löngum tíma djammararnir úr Geordie Shore hyggjast verja hér á landi en b5 mun vera opið almenningi í kvöld og eiga tökur á þættinum að hefjast klukkan 22.

Hér að neðan má sjá auglýsingu fyrir sjöundu þáttaröð Geordie Shore.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach