Systir Beyonce réðst á Jay Z

Jay Z
Jay Z AFP

Tónlistarmaðurinn bandaríski Jay Z virðist hafa fallið í ónáð hjá systur eiginkonu sinnar, tónlistarkonunni Beyonce, ef marka má nýtt myndskeið sem slúðursíðan TMZ birti í dag. Á því má sjá Solange ráðast allharkalega á Jay Z og hefðu afleiðingarnar getað orðið slæmar ef lífvörður hans hefði ekki gripið inn í.

Atvikið átti sér stað í lyftu Standard hótelsins í New York fyrir helgi. Jay Z, Beyonce og Solange höfðu öll verið að skemmta sér á hótelinu þegar rifrildi braust út og í kjölfarið réðst Solange á Jay Z. Samkvæmt því sem segir á TMZ er óljóst hvað varð til þess að Solange snöggreiddist á þessum tímapunkti, en átökin náðust á öryggismyndavél í lyftunni.

Öll þrjú gengu þau saman út af hótelinu en óku á brott í tveimur bílnum, Beyonce og Solange fóru saman á einum og Jay Z á öðrum.

Slúðurþyrstir bíða eflaust í eftirvæntingu eftir frekari fregnum af þessu máli. Myndbandið má sjá hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundaðu hreyfingu, heilsurækt og lestur til þess að auka þekkinguna. Líklega kemur gæludýr á heimilið fljótlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundaðu hreyfingu, heilsurækt og lestur til þess að auka þekkinguna. Líklega kemur gæludýr á heimilið fljótlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir