Jennifer Lawrence datt á rauða dreglinum - aftur

Leikkonan Jennifer Lawrence.
Leikkonan Jennifer Lawrence. mbl.is/AFP

Leikkonan Jennifer Lawrence virðist ekki enn vera búin að læra listina að ganga í himinháum hælum og síðkjólum, enda er það ekki beint hversdagsklæðnaður, en hún datt enn og aftur á rauða dreglinum á dögunum.

Samkvæmt heimildum Heat var leikkonan á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndarinnar X-Men: Days of Future Past í New York.

Hún missteig sig er hún var að ganga upp tröppur til þess að komast í myndatöku, en til allrar hamingju náði aðstoðarmaður að grípa í hönd hennar áður en hún skall í gólfið.

Hungurleikastjarnan hefur dottið á rauða dreglinum á Óskarsverðlaununum tvö ár í röð.

Hins vegar er það eitt það skemmtilega við Lawrence að hún gerir jafnmikið grín að þessu og aðrir, sem gerir þetta ekki eins vandræðalegt.

Leikkonan Jennifer Lawrence á frumsýningu X-Men: Days of Future Past.
Leikkonan Jennifer Lawrence á frumsýningu X-Men: Days of Future Past. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup