Hafþór Júlíus í næsta þætti Game of Thrones

Eftir langa bið munu unnendur Game of Thrones berja Hafþór Júlíus Björnsson augum í hlutverki The Mountain.

Næstkomandi sunnudag verður sjöundi þáttur þáttaraðarinnar sýndur vestanhafs en í stiklu fyrir þáttinn má sjá The Mountain munda sverðið og drepa mann sem grátbiður hann um miskunn.

Í síðustu viku setti Hafþór mynd af sér og Lenu Headey (Cersei Lannister) inn á Facebook með þeim orðum að The Mountain myndi birtast í sjötta þætti seríunnar. Margir aðdáendur Hafþórs lýstu yfir vonbrigðum sínum þegar ekkert vöðvatröll var að finna í sjötta þætti. Hafþór var fljótur að biðjast afsökunar en hann hafði sjálfur fengið vitlausar upplýsingar. Á IMDB segir reyndar að Hafþór eigi ekki að birtast fyrr en í áttunda þætti en Monitor hefur ákveðið að stóla á stikluna og vera tilbúinn með poppið þegar sá sjöundi fer í loftið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundaðu hreyfingu, heilsurækt og lestur til þess að auka þekkinguna. Líklega kemur gæludýr á heimilið fljótlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Stundaðu hreyfingu, heilsurækt og lestur til þess að auka þekkinguna. Líklega kemur gæludýr á heimilið fljótlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir