Gríðarleg stemning í Höllinni

Úrslitin í Skólahreysti fara fram þessa stundina í Laugardalshöll. Tólf lið keppa þar til sigurs og þeim fylgir fjöldi litríkra stuðningsmanna sem hvetja liðin til dáða. Keppn­is­grein­arn­ar eru upphíf­ing­ar, arm­beygj­ur, dýf­ur, hreystigreip og hraðaþraut.

Skóla­hreysti byrjaði árið 2005 með þátt­töku sex skóla. Í ár voru um 110 grunn­skól­ar af öllu land­inu sem tóku þátt. Af þeim komust tólf skólar áfram í úrslitin sem fram fara í kvöld. Og víst er að margir bíða spenntir eftir því að sjá hver verður krýndur hraustasti skólinn á landinu.

Holtaskóli er núverandi meistari og reynir liðið að verja titilinn þriðja árið í röð.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þér er að takast að koma skikki á hlutina og átt hrós skilið fyrir allt það erfiði sem þú hefur lagt á þig. Mundu að vinir og vandamenn eru sú stoð sem gott er að hafa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar