Heiðarskóli vann í kvöld sigur í Skólahreysti en tólf skólar kepptu til úrslita í Laugardalshöll. Í öðru sæti varð Holtaskóli og í því þriðja Seljaskóli. Heiðarskóli þótti ansi sigurstranglegur en hann var með besta árangur allra skóla í undanúrslitunum. Skólinn vann einnig árið 2010.
Fyrir Heiðarskóla kepptu í ár þau Andri Már Ingvarsson, Elma Rósný Arnarsdóttir, Arnór Elí Guðjónsson og Katla Rún Garðarsdóttir. Þrjú þeirra voru að keppa í fyrsta skipti en Andri Már tók einnig þátt í fyrra.
Frétt mbl.is: Mæta til leiks með besta árangurinn