Gleðilegan 70 ára afmælisdag lýðveldisins. Á meðan þú veltist um í sælum draumi kandífloss og þjóðerniskenndar eru hér 17 aðrir hlutir sem gerst hafa 17. júní í gegnum árin. Monitor selur staðreyndirnar reyndar ekki dýrar en þær voru keyptar en þær fengust á útsölu á hinni dásamlegu og alvitru Wikipedia.
1. 1397: Eiríkur af Pommern var krýndur konungur allra Norðurlanda.
2. 1596: Willem Barents fann Svalbarða.
3. 1631: Mumtaz Mahal dó við barnsburð. Eiginmaður hennar, Shah Jahan I eyddi næstu 17 árunum í að byggja Taj Mahal henni til heiðurs.
4. 1885: Frelsisstyttan kom til New York.
5. 1911: Háskóli Íslands var stofnaður og settur í fyrsta sinn.
6. 1915: Fyrsta bílprófið var tekið í Reykjavík. Handhafi skírteinis númer eitt var Hafliði Hjartarson trésmiður, 28 ára gamall.
7. 1926: Björg Karítas Þorláksdóttir varð fyrst íslenskra kvenna til að ljúka doktorsprófi er hún varði doktorsritgerð sína við Sorbonne-háskóla í París.
8. 1939: Síðasta opinbera aftakan með fallöxi fór fram í Frakklandi.
9. 1940: Sovétríkin hernámu Eistland, Lettland og Litháen.
10. 1971: Richard Nixon, þáverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir stríði á hendur eiturlyfjum.
11. 1972: Fimm menn voru handteknir fyrir innbrot í höfuðstöðvar demókrata í Watergate-byggingunni í Washington en þeir höfðu ætlað að koma þar fyrir hlerunarbúnaði. Þetta atvik markaði upphaf Watergate-hneykslisins.
12. 1980: Ísbjarnarblús, fyrsta plata Bubba Morthens, kom út.
13. 1987: Síðasti fuglinn af tegundinni Dusky Seaside Sparrow drapst og varð tegundin þar með útdauð.
14. 1987: Bandaríski rapparinn og tónlistarmaðurinn Kendrick Lamar fæddist.
15. 1994: O.J. Simpson var handtekinn fyrir morðin á eiginkonu sinni, Nicole Brown Simpson og vini hennar Ronald Goldman, í kjölfarið á bílaeltingaleik sem var sjónvarpað.
16. 1994: Jóhanna Sigurðardóttir lagði grunninn að stjórnmálaflokknum Þjóðvaka með orðunum „minn tími mun koma“.
17. 2008: Hvítabjörn var skotinn á Skaga, eftir að tilraunir til að svæfa hann með deyfilyfjum misheppnuðust.