Fögnuðu eins árs afmæli með útihátíð

Blásið var til heillar útihátíðar í tilefni afmælis dóttur stjörnuhjónanna Kanyes Wests og Kim Kardashian á dögunum. Sú ber heitið North West og átti hún eins árs afmæli hinn 15. júní. Afmælisveislan fór fram á laugardaginn og bar heitið „Kidchella“, en þar er um að ræða tilvísun í tónlistarhátíðina vinsælu Coachella sem fram fer árlega í Kaliforníu.

Sett voru upp ýmis leiktæki og svið auk þess sem gestir fengu andlitsmálningu og armbönd með nafni hátíðarinnar. Ungstirnin Kylie Jenner og Jaden Smith sungu nokkur vel valin lög á hátíðinni, sem var eflaust ein flottasta eins árs afmælisveisla sem um getur af myndunum að dæma.

Frétt E-News

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach