Katerina Christodoulou er nýútskrifuð úr Háskólanum í Essex. Það væri eflaust ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það að Christodoulou tók út hátt í tvær milljónir í námslán hjá ríkinu í krafti stöðu sinnar sem námsmanns og eyddi þeim í lýtaaðgerðir.
Hin 21 árs gamla námsmær eyddi lánunum í aðgerðir á lærum, mjöðmum og hnjám. Fyrrum kærasti hennar ku hinsvegar hafa splæst í nýju brjóstin. Christodoulou íhugar nú að fara einnig í nefaðgerð en hún hyggst byggja sér upp feril sem fyrirsæta.
„Ég hefði getað eytt láninu í námið en ég var svo heppin að eiga stuðningsríka fjölskyldu sem hjálpaði mér að borga fyrir bækurnar mínar og félagslífið. Það gerði mér kleift að spara,“ sagði Christodoulou í viðtali við Leicester Mercury.