Afþreyingarvefurinn Riddle birti í fyrradag lista yfir þá tíu tónlistarmenn og hljómsveitir Íslands sem allir ættu að kynna sér.
Efst á lista eru Björk, Sigur Rós, Of Monsters and Men og Emilíana Torrini sem þegar hafa skapað sér nafn á erlendri grundu. Í humátt á eftir fylgja Ásgeir Trausti, MÚM, Seabear, Samaris, þá Hjaltalín og loks Ólöf Arnalds.
Listann í heild má sjá hér auk stuttra lýsinga eða punkta um hvern listamann fyrir sig.