Afklæddist og faðmaði Mandela

Stytta af Nelson Mandela
Stytta af Nelson Mandela AFP

Kona afklæddist á Nelson Mandela torginu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í dag áður en hún gekk að risavaxinni styttu af Mandela sjálfum og faðmaði blíðlega á meðan aðrir fylgdust undrandi með.

Konan heilsaði fyrst styttunni af forsetanum fyrrverandi áður en hún afklæddist að sögn sjónarvotts. Þetta gerðist um klukkan fjögur í dag og sagði þjónustustúlka á veitingahúsi á torginu töluverðan æsing hafa myndast. Hún sagði einn karlkyns kúnna meðal annars hafa verið sleginn í höfuðið af eiginkonu sinni þegar hann stóð upp til þess að athuga málið betur.

Öryggisvörður bað konuna um að fara aftur í fötin. Hún hlýddi því og yfirgaf torgið án frekari útskýringa.

Mynd af athæfinu sem birtist á Twitter sýnir hvernig konan hallaði höfði sínu að styttunni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach