Hinn fullkomni íslenski lagalisti fer senn að verða tilbúinn en hér hafa verið tekin saman 15 frábær íslensk „núllís“ lög. Áratugurinn sem nú verður fjallað um spannar tímabilið frá árinu 2000 til loka ársins 2009.
Í síðustu viku voru tekin saman 15 góð lög frá tíunda áratugnum en nú er komið að þeim næsta.
1. Dag sem dimma nátt - Í svörtum fötum
Allir ættu að geta raulað með þessu lagi.
2. XXX - XXX Rottweiler
Þetta lag varð gríðarlega vinsælt á sínum tíma.
3. Lífið er lotterí - Papar
Þetta lag er kjörið í útileguna.
4. David - Gus Gus
Þetta lag verður bara betra með tímanum.
5. Traustur Vinur - Á móti sól
Hljómsveitin Upplyfting samdi og spilaði þetta lag fyrst en allir Íslendingar ættu að geta sungið með.
6. Kindin Einar - Hjálmar
Frábært lag í alla staði og textinn sérlega skemmtilegur.
6. Stun Gun - Quarashi
Einn mesti smellur Quarashi fyrr og síðar.
7. Ég vil fá mér kærustu - Hjálmar
Þetta lag á svo sannarlega heima á listanum. Ætli margir verði í kærustuleit um verslunarmannahelgina?
8. Kærleikur og tími - KK
Fallegt og gott lag sem varð algjör sumarsmellur á sínum tíma.
9. Thank You - Dikta
Á plötunni Get It Together sem Dikta gaf út árið 2009 má finna mörg frábær lög sem enn eru vinsæl í dag.
10. Viltu Dick - Sykur
Lagið vakti mikla athygli þegar það kom út árið 2009.
11. This Heart - Bloodgroup
Bloodgroup sló í gegn með þessu lagi.
12. Bahama - Ingó og Veðurguðirnir
13. Murr Murr - Mugison
14. Þú komst við hjartað í mér - Páll Óskar
15. Eyes Of A Cloud Catcher - Agen Fresco
Lagið var vinsælasta lagið á X-inu í tvær viku samfleytt árið 2008 og á því heima á þessum lista.