Flytur ljóð um Harry Potter-erótík

„Spyrjið mig hvernig klám ég fíla og ég mun taka ykkur í töfrandi ferðalag.“ Þannig hefst ljóð Brennu Twohy, „Fantastic Breasts and Where To Find Them.“ Ferðalagið endar á vefsíðu þar sem aðdáendur bókanna um galdrastrákinn Harry Potter skrifa erótískar sögur um persónur galdraheimsins. 

Ljóð Twohy hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum síðastliðna daga. Í ljóðinu ræðir hún um ást sína á Potterotica, sem útleggja mætti á íslensku sem Potterótík, en það sem henni þykir einna mest æsandi við klámsögurnar sé að þær séu hluti af stærri heimi.

Staðhæfingum um að Potterótíkin sé óraunhæf svarar hún með ábendingum um hversu óraunverulegt hefðbundið klámefni er og hvað það segi ungu fólki um kynlíf.

„Kyn mitt er ekki hægt að setja í umbúðir, kyn mitt er töfrandi,“ segir í ljóðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach