The Knife á Iceland Airwaves

Úr tónlistarmyndbandi The Knife við lagið A Tooth for an …
Úr tónlistarmyndbandi The Knife við lagið A Tooth for an Eye. YouTube

Rétt í þessu tilkynntu skipuleggjendur Iceland Airvawes að sænska hljómsveitin The Knife muni koma fram á hátíðinni í ár. Þetta er í fyrsta skipti sem The Knife kemur fram á Íslandi og munu tónleikar þeirra verða þeir síðustu á tónleikaferðalagi þeirra, Shaking The Habitual, sem hófst á síðasta ári.

Systkinin Karin Dreijer Anderson og Olof Dreijer hafa verið leiðandi afl í raftónlist síðan hljómsveitin hóf störf árið 1999. Svo skemmtilega vill til að Iceland Airwaves var fyrst haldin sama ár í flugskýli 4 á Reykjavíkurflugvelli. Hátíðin fer fram í 16. skipti í ár dagana 5. til 9. nóvember. Miðasala er þegar hafin en síðustu ár hefur selst upp á hátíðina í byrjun september og því ættu áhugasamir tónlistarunnendur að hafa hraðar hendur.

The Knife bætast í hóp fjölda listamanna sem áður hafa verið tilkynntir eins og Flaming Lips, The War on Drugs, Caribou, Samaris, Unknown Mortal Orchestra, Future Islands, Hozier, Sóley, FM Belfast, Jungle, Klangkarussell, La Femme, Mammút, Kelela, Radical Face, Valdimar, East India Youth, Árstíðir, Jaakko Eino Kalevi, Prins Póló, Agent Fresco, Ballet School, Ezra Furman, Lay Low, Kwabs, Son Lux, Tomas Barfod, The Vintage Caravan og Vök.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar