Bandaríski leikarinn George Clooney kvæntist í kvöld mannréttindalögfræðingnum Amal Alamuddin. Brúðkaupið fór fram í Feneyjum. Fjöldi fólks úr skemmtanaiðnaðinum var viðstaddur brúðkaupið.
Clooney er 53 ára, en Alamuddin er 36 ára. Alamuddin er af breskum og líbönskum ættum. Þetta er annað hjónaband Clooney, en Alamuddin hefur ekki áður gengið í hjónaband.
Clooney og Alamuddin verið á ferð og flugi um Feneyjar ásamt fylgdarliði síðustu daga. Ljósmyndarar hafa elt þau á röndum og fylgst með hverju fótspori þeirra.