Leikkonan Elizabeth Pena er látin, hún var 55 ára. Pena lést á spítala í Los Angeles í gær eftir að hafa glímt við veikindi í stuttan tíma.
Pena hóf feril sinn í leikhúsi en hennar fyrsta kvikmyndahlutverk var í myndinni El Super sem kom út árið 1978. Pena hefur síðan þá farið með lítil hlutverk í ýmsum þáttum og kvikmyndum. Pena talaði meðal annars inn á þættina American Dad og kvikmyndina The Incredibles, þá lék hún einnig í kvikmyndinni Rush Hour og í þættinum Modern Family.
Pena skilur eftir sig eiginmann og tvö börn.